Leita í fréttum mbl.is

Bretar stela senunni frá íslenskum björgunarmönnum

Reuters fréttastofan birti frétt þar sem m.a. segir frá afreki breskrar björgunarsveitar á Haiti sem bjargaði 2 konum. "Joyful scenes like this one are rare. These two women were both found alive by a British search team" segir fréttamaðurinn (00:31 - 00:38)  ... en þar sjást íslenskir björgunarmenn að bjarga 2 konum.

Hérna er Reuters fréttin

Í umræddri frétt er greinilegt að á bakinu á einum björgunarmannanna er merki Landsbjargar (00:33) og á bak við hann eru restin af íslensku sveitinni.

Fyrr í fréttinni (00:15) sést greinilegur búningur breskra björgunarmanna og munurinn er augljós. Sennilegt er að eitthvað hafi skolast til myndskeið í klippiherberginu hjá Reuters fréttastofunni. Vona það allavega...

 rescue


mbl.is Fólk hefst við undir tjöldum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikill áhugi á froðusnakki

"Það var náttúrulega löngu búið að finna upp þetta snakk, enda al-íslenskt fyrirbæri. En það er ekki fyrr en nú sem okkur hefur tekist að koma því á umbúðir" segir Friðbert Gunnarsson vöruhönnuður, en hann hefur nú ásamt nokkrum öðrum snillingum tekist að koma froðusnakki á umbúðir til útflutnings. Snakkið mun skapa gríðarlegan gjaldeyri enda er Ísland auðugt af froðusnakki og löngu tímabært að koma slíkum auðlindum í verð. Pantanir eru þegar farnar að berast, aðallega frá Bretlandseyjum og Hollandi. "Bretar eru gríðarlega áhugasamir um íslenska froðusnakkið og þeir virðast aldrei fá nóg af íslenskum hugmyndum, enda er þetta ekkert minna en tær snilld" sagði Friðbert að lokum en hann hefur nú tekið upp starfsheitið Froðusnakkur í símaskránni.Frodusnakk

Krónan

kronan_onyt

Reyndu að selja ömmur sínar

Undanfarið hefur verið mikil herferð í gangi í Valhöll við að selja allt sem hægt er að selja. Flóamarkaðir hafa verið haldnir undanfarið þar sem reynt hefur verið að að koma eigum Flokksins í hendur einkaaðila. "Eftir að við duttum út úr ríkisstjórn misstum við tækifærið til að selja Alþingishúsið, Tjörnina, styttur bæjarins og fleira verðmætt" sagði talsmaður flóamarkaðs Valhallar í morgun, en sagðist þess fullviss að ekki yrði langt að bíða eftir að tækifæri á slíkum reyfara-sölum kæmu aftur. Nokkrir starfsmenn Flokksins voru í óða önn við að reyna að selja ömmur sínar þegar ljósmyndara bar að Valhallar-garði í morgun. "Ég meina, þetta eru verðmæti, fjármagn sem liggur dautt" sagði ungur starfsmaður borubrattur við einn sölubásinn.gamlar konur á uppboði

 

 

 

 

 

 

 

 

 

             Plííííís, kaupið okkur. Þetta er svo frábær málstaður.


Hundalán

Hundurinn Seppi var heldur betur hissa þegar fulltrúar frá Íslandsbanka bönkuðu uppá á heimili hans í síðustu viku. "Þeir sögðu mér að lánin sem ég hafði tekið til að kaupa mér cute-dog-yawning11233800905hlutabréf í Byr væru ólögleg en að ég þyrfti ekkert að borga þau til baka" sagði Seppi og geispaði glaður þegar blaða- og fréttamenn hittu hann í gær. "Nei það er ekki á hverjum degi sem menn og hundar sleppa svona vel" var haft eftir þjónustufulltrúa Seppa í bankanum. Heimilisfaðirinn segist ekki hafa haft hugmynd um að Seppi hafi tekið þetta lán, enda hafði hann ekki gefið honum neitt leyfi til þess. Hann furðar sig ennfremur á vinnubrögðum bankans.

Taka Kópavogskirkju með sér líka

Endalok ruslfæðiskeðjunnar Makkdónalds á Íslandi verða að veruleika nú um mánaðamótin og er niðurrifið í fullum gangi: "Íslensk yfirvöld kröfuðst þess að fjarlægð yrðu öll ummerki eftir okkar lélegu amerísku ruslmenningu á landinu" sagði Ravis McDonald framkvæmdastjóri um brotthvarf ruslkeðjunnar frá Íslandi. Nú síðdegis hófst vinnuflokkur handa við að fjarlægja Kópavogskirkju og koma henni í skip sem heldur vestur um haf strax í fyrramálið þar sem henni verður komið fyrir á nýjum stað.

K%C3%B3pavogskirkja-st%C3%B3r


Breytingar

Eftir að búið er að breyta Mogganum í ómarktækt grínblað með undanförnum breytingum þá hefur ritstjórn þessarar vefsíðu (eftir góða pásu) tekið þá ákvörðun að efnistökum hennar verði breytt í takt við það. Framvegis verður þessi vefsíða í anda Moggans, Baggalúts og fleiri skemmtimiðla.

Eldhúsdagur....

....á Alþingi er það leiðinlegasta sjónvarpsefni sem nokkurn tímann hefur sést á skjám landsmanna og ætti að vera útvarpsefni -sent út á rás eitt. Ef þingið vill hafa þennan svokallaða eldhúsdag sinn þá veifar það einfaldlega flaggi og dagskrá RÚV umrætt kvöld er frestað og allt þar sett á dagskrá síðar. Þrátt fyrir að sérstök Alþingisrás sé til er hún ekki nógu góð þegar kemur að þessu framboðsræðurugli. Hvorki dagskrárstjóri RÚV eða útvarpsstjóri hafa neitt um málið að segja vegna þess að svona eru lögin einfaldlega, sett af Alþingi sem er í þessu máli báðum megin við borðið.

Þannig er mál með vexti að ég er búinn að vera að vinna að gerð heimildarmyndar í mjög langan tíma og frumsýning var auglýst og fyrirhuguð á dagskrá RÚV sama kvöld og þessar dreeeepleiðinlegu eldhúsdagsumræður hafa nú verið settar í staðinn, og myndinni þar af leiðandi frestað um tvær vikur og fer á dagskrá rétt fyrir kosningar. Flott sending frá Alþingi, takk fyrir það.


Samfylkingarsígarettur?

Það var engu líkara en að Ingibjörg Sólrún flytti ræðu sína úr sígarettupakka á flokksþinginu í gær. Vinna og Velferð, nýju slim sígaretturnar frá Samfylkingunni! Viðskiptahugmynd? Ný lausn á atvinnuleysinu? Það er spurning...Ingjbjorg sigaretta

Grái fiðringurinn

Ég horfði gagnrýnum augum á konuna sem ég hef verið giftur í 30 ár og sagði: Heyrðu elskan, fyrir 30 árum áttum við ódýra íbúð, ódýran bíl, við sváfum á sófanum í stofunni, horfðum á 10 tommu svart/hvítt sjónvarp og á hverju kvöldi iðkaði ég bólfarir með viljugri 25 ára stelpu.

Núna á ég 80 milljón króna hús, 15 milljóna bíl, rúm á stærð við skeiðvöll og 50 tommu flatskjá  en þarf að sætta mig við það á hverju kvöldi, að fara í bólið með þreyttri 55 ára konu. Ég fæ ekki séð að þú hafir haldið í við þróunina hér!

Ég verð að játa að ég á skynsama konu.  Hún leit snöggvast á mig og sagði um leið: Ekki vandamálið. Drífðu þig bara út og finndu þér 25 ára viljuga stelpu! Ég sé um að þú fáir hitt aftur, ódýra íbúð, bíldruslu og ódýrt svart/hvítt sjónvarp!

Eftir þessi 30 ár, veistu að ég meina það sem ég segi. Er konan mín ekki frábær - Grái fiðringurinn hvarf á einu andartaki!!!

Myndir ársins 2008

Opnuð verður í dag hin árlega sýning ljósmyndara Blaðamannafélags Íslands. Sýningin er að venju haldin í Gerðarsafni í Kópavogi og er merkileg í ár fyrir þær sakir að fréttatökumenn Sjónvarps eru nú með í sýningunni í fyrsta skipti, þar sem þeir eru gengnir í félagið. Á neðri hæð safnisins er ljósmyndarinn Jim Smart að auki með einkasýningu en þar er sýningarbás kvikmyndatökumanna staðsettur. Þátttaka kvikmyndatökumanna að svona sýningum er þekkt í nokkrum löndum og var kærkomið að íslenskir hefji innreið sína í sýningarsali nú eftir annað eins fréttaár og það síðasta var.

Sýningin opnar klukkan 3 í dag og verður opin í nokkrar vikur.


Sátt og ósátt

Frú Obama er ánægð með stöðu mála en frú Rice virðist ekki vera sátt....

image001_809828.jpgimage002.jpg


Næsta síða »

Ritstjóri

Guðmundur Bergkvist
Guðmundur Bergkvist
er kamerudýr, bjórhverfinga- maður og fyrrv. óðalsbóndi. Afar áhugasamur um sjónvarp, tónlist, kvikmyndir, eiginkonuna, knattspyrnu, veiðimennsku og internetið.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband