3.3.2009 | 22:48
Ég ætla aldrei að kvarta aftur....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
27.2.2009 | 22:30
Tonn á móti tonni
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.2.2009 | 11:59
Spurningin sem vantaði í viðtalið
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.2.2009 | 10:25
Sturla handtekinn aftur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.2.2009 | 21:47
Nú skilur minn hvorki upp né niður
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.2.2009 | 12:59
Íslensk bjórframleiðsla í Danaveldi
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 13:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.2.2009 | 14:51
Survivor Central bank
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.2.2009 | 22:35
Ekkert nútíma vísindakjaftæði takk
Fékk alveg magnaðan bækling inn um bréfalúguna í dag. Ekki alveg með á hreinu hver sendandinn er, það er eitthvað ógreinilegt, allavega er sá hinn sami trúaður og boðar dómsdag. Sýnist þetta vera einhver hjón í Noregi sem senda þetta. En jæja hvað um það, þetta er alveg ótrúlegt sem stendur þarna. Það er sko alltaf verið að blekkja fólk eins og við vitum, svoleiðis heilu skólakerfin og margar margar þjóðir gera það vísvitandi. Það verður einhver að stoppa þessar endalausu blekkingar. Þetta stendur meðal annars í bæklingnum:
"Það er sorglegt að til sé fólk sem er hætt að trúa því að Guð er skaparinn. Á nítjándu öld kom Charles Darwin fram með kenninguna um uppruna tegundanna. Því miður hafa margir látið blekkjast af þessari manngerðu kenningu um þróun, sem er stöðugt lætt inn í bækur og kennsluefni grunnskóla og háskóla."
Já svo skilst mér líka að þessi David Attenborough sé bara loddari sem er sífellt að ljúga að fólki einhverju rugli um dýr og náttúru í gegnum sjónvarpið. Við vitum alveg að þetta varð ekkert til svona. Það eru sko engar manngerðar kenningar sem standa í Biblíunni, bara hrein og klár sannindi sem Guð sendi okkur, engin nútíma bull-vísindi.
Fyrir áhugasama um heimsendi má finna frekari upplýsingar um innihald bæklingsins hjá íslenska tengiliðnum endalokin@gmail.com og hjá þessum norsku ofurtrúboðum á www.endtime.net
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.1.2009 | 16:05
Sjallar mótmæla
Fyrir framan Alþingishúsið við Austurvöll eru nú samankomnir fjölmargir Sjálfstæðismenn til að mótmæla rauðu kommúnistabyltingunni sem þeir segja að sé hafin í landinu. Sjöllunum er heitt í hamsi og þeir hrópa í sífellu "vanhæf vinstristjórn!" ásamt því að framkalla mikil óhljóð og skrölt með því að hrista fínu skartgripina og Rolex úrin sín. Sumir þeirra eru jafnvel farnir að tromma á húddin á jeppunum og sportbílunum sínum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
28.1.2009 | 11:04
Joð og eyra
Það eru margir sem kvíða vinstri stjórn í landinu og einnig margir sem hlakka til. Steingrímur Joð mætti til stjórnarmyndunarfundar í morgun og Raxi ljósmyndari á Mogganum tók mynd af Steingrími og eitthvað fannst honum líka eyrað á mér vera heppilegt myndefni á sömu mynd.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.1.2009 | 20:28
Eins og sagt í gær
-Karl Marx, 1867
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
19.1.2009 | 17:07
Brandaraflokkurinn
Ég er alinn upp í Framsóknarbæli úti á landi þar sem Kaupfélagið réði (og ræður enn) öllu. Þar ráða gamlar hugsjónir enn ferðinni. Samfélagsleg ábyrgð um að allir hafi vinnu við að framleiða eitthvað verðmætt virðist enn vera aðal málið. Þessar hugsjónir þóttu orðnar gamaldags í þjóðfélaginu og úr sér gengnar og jafnvel gert grín að þeim í höfuðborginni og víðar. Meira að segja þingmaður lét út úr sér einhvern tímann í gróðærinu að gömlu framleiðslugreinarnar væru bara algert aukaatriði. Spákaupmennska með loft og ímyndaðar tölur voru framtíðin. Þrátt fyrir þessar hugsjónir hefur mér aldrei tekist að kjósa Framsóknarflokkinn og er ekki viss um að ég eigi það eftir, nema þá kannski í einhverju gríni.
Á laugardaginn fékk ég það skemmtilega verkefni að vera sendur á flokksþing gamla farsakennda bændaflokksins sem hefur verið upptekinn við eigið niðurrif og skandala að undanförnu en er nú sannfærður um bjarta framtíð. Þarna voru mörg gamalkunn Kaupfélags-andlit saman komin í salnum með vonarneista í augum um að finna nýjan og ferskan foringja. Nýtt upphaf var í augsýn. Nú átti sko að láta þjóðina vita að flokkurinn er risinn úr öskustónni og hann ætlar að verða stór og sterkur á ný og traustsins verður. Maður bókstaflega kafaði í gegnum andrúmsloft eftirvæntingar og bjartsýni og eftir samtöl við nokkra gamla kunningja utan af landi í salnum þá mat ég það svo að hin nýja og óspillta vonarstjarna og fyrrverandi RÚV fréttamaður, Simmi Gunnlaugs myndi hreppa stólinn.
Formannskandídatinn hélt sína framboðsræðu og sagði að nú myndi fólk streyma í flokkinn og að Frammarar hefðu alltaf trúað því að aðal málið væri að framleiða eitthvað raunverulegt og viðskipti með ímyndað loft væru ekki það sem Framsókn hefði trúað á. Það var nú engin slík stemmning í gangi í flokknum í stjórnartíð einkavæðingar og græðgi með íhaldinu, eða hvað? Ég varð að halda fyrir munninn til að hósta ekki og ræskja mig meðan ég skimaði um salinn. Einkavæðingar-Valla á Lómatjörn horfði í gaupnir sér en hvergi voru sjáanlegir Finnur gráðugi og moldríkir félagar hans. Óli í Samskip var líka upptekinn við annað og merkilegra.
Svo steig gamli brandarakallinn Guðni upp í ræðustól til að taka við heiðursblómum og hefja upp RRRaust sína í síðasta sinn við flokksmenn. Á því augnabliki varð mér ljóst hvað það er gríðarlegur sjónarsviptir af Guðna af hinum opinbera vetttvangi. Ég sakna hans. Valla á Lómatjörn rétti Guðna fallegan vönd með afskornum blómum og kyssti hann kurteisislega á kinnina. Svo sagði Guðni í miðri ræðu: "Framsóknarflokkurinn þarf að rísa og blómstra eins og þessi blóm" Blómin eru sennilega orðin ansi visin og slöpp í stofunni heima á Selfossi nú 2 dögum síðar.
Valla afhenti næst bjartsýnisverðlaun flokksins. Ég taldi fyrir víst að flokkurinn fengi þau bara sjálfur fyrir alla bjartsýnina um að verða nú aftur tekinn alvarlega og í fullorðinna tölu eftir eigin niðurlægingu undanfarið. Farsinn blossaði svo aftur upp fyrir alvöru þegar nýr formaður var "réttilega kosinn" Í fagnaðarlátunum kom fyrrverandi sláturhússtjóri austan af Héraði með tárin í augunum og faðmaði Sigmund eins og hann væri gamall vinur hans. Enn einn formaðurinn var kosinn og annar varð kóngur um stund. 10 mínútur sem formaður er sennilega heimsmet. Sex formenn á 2 og hálfu ári er líka pottþétt Íslandsmet. Í mínum huga er Framsókn ennþá brandaraflokkur Íslands sem heldur uppi stuðinu. Hvar væri grínið og glensið án þeirra?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
17.1.2009 | 18:52
Eiríkur þegir loksins
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
12.1.2009 | 15:12
Gandalfur kemur vitinu fyrir Davíð
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar