Leita í fréttum mbl.is

Kæri Gísli Marteinn

Ég er sammála þér að það er ekki fallegt þegar borgin er full af gargandi og rænandi mávum. En hvernig miðar annars meindýraverkefninu sem þú varst skrifaður fyrir frá borgarstjórn, ertu nokkuð hættur? Það var mikil hreingerning sem þú lést sýna í fréttunum í fyrra enda eru þessir mávar ekkert annað en fljúgandi rottur og flott þegar skytturnar stráfelldu þær. Að vísu fannst mörgum það full glannalegt að sjá skyttur standa með haglara á bökkum Tjarnarinnar og freta rotturnar niður fyrir framan börn og túrista en þar virkar víst ekkert annað þegar Tjörnin og borgin eru orðnar fullar af þessum ófögnuði.

Ég fór nefnilega að spá í þetta meindýramál fyrir nokkrum dögum þegar ég var að þvælast úti á Álftanesi. Þar sátu sílamávarotturnar í hundruðum á hreiðrum og eru margir ungar þegar skriðnir úr eggjunum. Ekki dettur nokkrum manni í hug að meindýraeyða því, það myndu einhversstaðar kallast fyrirbyggjandi aðgerðir. Í Kópavogi, á lúpínuenginu vestan við stóra íþróttahúsið Fífuna, sá ég kvikindin fjölga sér líka alveg óáreitt, rétt við mannabústaði. Það er kannski ekki nema von að það fyllist allt af meindýrum þegar þeim er leyft að fjölga sér í friði, á miðju höfuðborgarsvæðinu.

Væri nú ekki gáfulegt að huga að þessu heldur að þurfa einungis að skjóta fullorðnar rotturnar inni í miðri borg, búa til eitthvað plan til lengri tíma til að losna við ófögnuðinn. Að vísu er það mjög sjónrænt þegar borgarbúar sjá (í sjónvarpinu) að það er verið að gera eitthvað í málunum en flestir myndu þó kjósa að hafa þetta þannig að þeir sæju helst hvorki meindýraeyðana né mávana. Hjá borgarstjórn er kannski í lagi að hugsa þetta verkefni til skemmri tíma því enginn veit hvernig þeirri stjórn verður háttað í næstu viku (að neðan, rotta étur rottu)1527100_506x380


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórhildur Helga Þorleifsdóttir

Þetta minnir mig á gömlu, góðu dagana í Andey þegar ég sem ung stúlka dundaði mér við svona forvarnaraðgerðir,- stúta eggjum,- skilja eitt vel hrist eftir í hreiðri og ef ungað var út áður en hægt var að framkvæma þetta þá var farið í mávsungaeltingarleik og slá í stein......blóðbað,- ekkert annað ( þvílíkt uppeldi ;)

Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 26.6.2008 kl. 22:09

2 Smámynd: Eiður Ragnarsson

Nákvæmlega, drepum þetta í fæðingu.......

Blóðþorsti er okkur í blóð borin.

Eiður Ragnarsson, 29.6.2008 kl. 13:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Ritstjóri

Guðmundur Bergkvist
Guðmundur Bergkvist
er kamerudýr, bjórhverfinga- maður og fyrrv. óðalsbóndi. Afar áhugasamur um sjónvarp, tónlist, kvikmyndir, eiginkonuna, knattspyrnu, veiðimennsku og internetið.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 9
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 51352

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband