Leita í fréttum mbl.is

Brandaraflokkurinn

Ég er alinn upp í Framsóknarbæli úti á landi þar sem Kaupfélagið réði (og ræður enn) öllu. Þar ráða gamlar hugsjónir enn ferðinni. Samfélagsleg ábyrgð um að allir hafi vinnu við að framleiða eitthvað verðmætt virðist enn vera aðal málið. Þessar hugsjónir þóttu orðnar gamaldags í þjóðfélaginu og úr sér gengnar og jafnvel gert grín að þeim í höfuðborginni og víðar. Meira að segja þingmaður lét út úr sér einhvern tímann í gróðærinu að gömlu framleiðslugreinarnar væru bara algert aukaatriði. Spákaupmennska með loft og ímyndaðar tölur voru framtíðin. Þrátt fyrir þessar hugsjónir hefur mér aldrei tekist að kjósa Framsóknarflokkinn og er ekki viss um að ég eigi það eftir, nema þá kannski í einhverju gríni.

Á laugardaginn fékk ég það skemmtilega verkefni að vera sendur á flokksþing gamla farsakennda bændaflokksins sem hefur verið upptekinn við eigið niðurrif og skandala að undanförnu en er nú sannfærður um bjarta framtíð. Þarna voru mörg gamalkunn Kaupfélags-andlit saman komin í salnum með vonarneista í augum um að finna nýjan og ferskan foringja. Nýtt upphaf var í augsýn. Nú átti sko að láta þjóðina vita að flokkurinn er risinn úr öskustónni og hann ætlar að verða stór og sterkur á ný og traustsins verður. Maður bókstaflega kafaði í gegnum andrúmsloft eftirvæntingar og bjartsýni og eftir samtöl við nokkra gamla kunningja utan af landi í salnum þá mat ég það svo að hin nýja og óspillta vonarstjarna og fyrrverandi RÚV fréttamaður, Simmi Gunnlaugs myndi hreppa stólinn.

Formannskandídatinn hélt sína framboðsræðu og sagði að nú myndi fólk streyma í flokkinn og að Frammarar hefðu alltaf trúað því að aðal málið væri að framleiða eitthvað raunverulegt og viðskipti með ímyndað loft væru ekki það sem Framsókn hefði trúað á. Það var nú engin slík stemmning í gangi í flokknum í stjórnartíð einkavæðingar og græðgi með íhaldinu, eða hvað? Ég varð að halda fyrir munninn til að hósta ekki og ræskja mig meðan ég skimaði um salinn. Einkavæðingar-Valla á Lómatjörn horfði í gaupnir sér en hvergi voru sjáanlegir Finnur gráðugi og moldríkir félagar hans. Óli í Samskip var líka upptekinn við annað og merkilegra.

Svo steig gamli brandarakallinn Guðni upp í ræðustól til að taka við heiðursblómum og hefja upp RRRaust sína í síðasta sinn við flokksmenn. Á því augnabliki varð mér ljóst hvað það er gríðarlegur sjónarsviptir af Guðna af hinum opinbera vetttvangi. Ég sakna hans. Valla á Lómatjörn rétti Guðna fallegan vönd með afskornum blómum og kyssti hann kurteisislega á kinnina. Svo sagði Guðni í miðri ræðu: "Framsóknarflokkurinn þarf að rísa og blómstra eins og þessi blóm" Blómin eru sennilega orðin ansi visin og slöpp í stofunni heima á Selfossi nú 2 dögum síðar.

Valla afhenti næst bjartsýnisverðlaun flokksins. Ég taldi fyrir víst að flokkurinn fengi þau bara sjálfur fyrir alla bjartsýnina um að verða nú aftur tekinn alvarlega og í fullorðinna tölu eftir eigin niðurlægingu undanfarið. Farsinn blossaði svo aftur upp fyrir alvöru þegar nýr formaður var "réttilega kosinn" Í fagnaðarlátunum kom fyrrverandi sláturhússtjóri austan af Héraði með tárin í augunum og faðmaði Sigmund eins og hann væri gamall vinur hans. Enn einn formaðurinn var kosinn og annar varð kóngur um stund. 10 mínútur sem formaður er sennilega heimsmet. Sex formenn á 2 og hálfu ári er líka pottþétt Íslandsmet. Í mínum huga er Framsókn ennþá brandaraflokkur Íslands sem heldur uppi stuðinu. Hvar væri grínið og glensið án þeirra?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Gaman að fá svona beinar lýsingar af fundum Framsóknarflokksins. Ég held að með þessum fundi hafi Framsókn skapað sér betri stöðu en þeir voru í. Ekki er ólíklegt að þeir fái fleiri atkvæði í næstu kosningum en síðast.

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 19.1.2009 kl. 18:51

2 Smámynd: Eiður Ragnarsson

Sláturhússtjórinn og 3 aðrir austfirðingar voru þeir sem hvöttu sigmund til að taka slagin um formannsstólinn, og það tókst að endurnýja algerlega forustu Framsóknar á þessu þingi.

Nem kanski með þeirri undantekningu að Birkir er búinn að vera á þingi 1,5 kjörtímabil.

En ég vona að þú hafir lítið breyst síðustu 20 árinn Beggi minn og grínist sem mest næstu misseri og sérstaklega í næstu kosningum.

Eiður Ragnarsson, 20.1.2009 kl. 01:59

3 Smámynd: Guðmundur Bergkvist

Ég vil taka það fram að ég hef ekkert á móti Framsóknarmönnum, fullt af fínu fólki þarna og góðar hugsjónir. Það er auðvitað lag núna að endurskipuleggja og yngja upp flokkinn, moka spillingarpakkinu út fyrir og sækja fram á meðan stjórnarflokkarnir missa fylgi sitt eins og þeir eigi lífið að leysa. Það er bara hver uppákoman eftir annarri í Framsóknarflokknum og það finnst mér skemmtiefni.

Guðmundur Bergkvist, 20.1.2009 kl. 18:04

4 Smámynd: Þórhildur Helga Þorleifsdóttir

En hvurs vegna bloggar þú ekki um mótmælin.....eru að þrífa augun núna ;)

Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 20.1.2009 kl. 21:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Ritstjóri

Guðmundur Bergkvist
Guðmundur Bergkvist
er kamerudýr, bjórhverfinga- maður og fyrrv. óðalsbóndi. Afar áhugasamur um sjónvarp, tónlist, kvikmyndir, eiginkonuna, knattspyrnu, veiðimennsku og internetið.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband