12.12.2007 | 22:02
Besta band allra tíma
Það er ekki nokkur einasti vafi í mínum huga að þetta er besta band sem nokkru sinni hefur verið sett saman, þvílíkir snillingar. Bítlarnir voru næstbestir en Zeppelin langbestir. Nánast allt sem þessir töffarar hafa samið er eintóm gargandi snilld og það vita allir sem eitthvað minnsta vit hafa á músík. Þeir myndu fylla Egilshöll 10 sinnum þótt það kostaði 25-30 þúsund kall inn, ekki spurning. (je, soldið bjartsýnn að halda að þeir kæmu einhvern tímann hingað)
Orðrómur um aðra tónleika Led Zeppelin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Að Zepelin belgurinn sé kominn á flug aftur eru ein bestu tíðindi sem ég hef heyrt lengi !
Ég vona svo sannalega að þeir haldi eitthverja tónleika, það yrði alveg hreint magnað að heyra í þeim þó ekki væri nema í sjónvarpinu.
Ef svo sjúklega vel vildi til að loftbelgurinn myndi mæta á klakann er ekki spurning um annað en að fara rakleiðis í höllina, hér erum við að tala um hljómsveit í top 5 allra tíma.
Aron Þorrason (IP-tala skráð) 12.12.2007 kl. 22:21
Ekki eins góðir og Pink floyd
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 13.12.2007 kl. 14:56
Jújújú, betri. Ekki spurning. Bestir, einfalt mál.
Guðmundur Bergkvist, 13.12.2007 kl. 19:25
Zeppelin eru klárlega eitt stærsta band sögunnar... en ekki stærri en Bítlarnir... þarf ekkert að ræða það, við erum að tala um svo miklu meira en bara band þegar talað er um Bítlana. Upptöku tækni og þróun sem átti sér stað og þeir voru brautryðjendur á svo mörgum sviðum að það er efni í doktorsritgerð. Stones verða nú líka að teljast stærri, hafa staðist öll tónlistartímabil sem skipta máli (þó svo að the early stuff er lang best). Pink Floyd eiga líka klárlega heima þarna uppi með þeim stærstu.
En ég efast ekki um að menn myndu slást eins og óðir loðfílar um miða á tónleika ef þeir væru til í að heiðra ísaldarmennina á klakanum með nærveru sinni.
"Lot's of people talk, few of them know, soul of a woman was created below"
Stefán Smári (IP-tala skráð) 18.12.2007 kl. 23:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.