29.1.2009 | 16:05
Sjallar mótmæla
Fyrir framan Alþingishúsið við Austurvöll eru nú samankomnir fjölmargir Sjálfstæðismenn til að mótmæla rauðu kommúnistabyltingunni sem þeir segja að sé hafin í landinu. Sjöllunum er heitt í hamsi og þeir hrópa í sífellu "vanhæf vinstristjórn!" ásamt því að framkalla mikil óhljóð og skrölt með því að hrista fínu skartgripina og Rolex úrin sín. Sumir þeirra eru jafnvel farnir að tromma á húddin á jeppunum og sportbílunum sínum.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Aðrir sýna vanþóknun sín með því brenna bókhald eignarhaldsfélaga sinna á miðjum Austurvelli án afskipta lögreglu. Og lítill hópur situr á Hótel Borg, sötrar kampavín og hrækir á stóra mynd af Steingrími Joð og Ingibjörgu Sólrúnu.
Lárus Vilhjálmsson, 29.1.2009 kl. 16:34
og síðan eru þeir allir að færa eignir sínar á nöfn kvenna sinna ;)
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 30.1.2009 kl. 08:54
Eiga þeir ekki líka rétt á því að mótmæla.....
En án gríns þá hlýtur þetta að vera gríðarlegt áfall fyrir ungliða Sjálfstæðisflokks, þeir muna ekki eftir öðrum í forsætisráðherrastóli, en sjálfstæðismanni, ef undan eru skildar þessir dagar sem Dóri sat í stóli, en það man nú engin eftir því lengur....
Eiður Ragnarsson, 3.2.2009 kl. 12:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.