22.11.2008 | 00:12
Öskurapi í útvarpi
Það er einhver hrikalega pirrandi gæi sem er alltaf að öskra eins og vitfirringur í útvarpinu og þykist vera að segja fólki að það eigi að drífa sig að kaupa notaða bíla á rosa góðum prís á einhverju bíla-átletti. Þetta virkar svo þveröfugt á mig að ég slekk undir eins eða stilli strax á aðra útvarpsstöð, fyrir utan þá augljósu staðreynd að eitt það síðasta sem mig vantar í þessu ástandi er annar bíll. Það eru auðvitað svo fáir að kaupa bíla í dag að mann-apinn hlýtur að vera orðinn alveg upptjúnaður af stressi.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 51521
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Er alveg sammála þér,þessi auglýsing er ekki að gera það að vekja athygli á þessari bílasölu,engan vegin ég skrúfa niður í útvarpinu um leið og ég heyri í þessum öskrara.
Númi (IP-tala skráð) 22.11.2008 kl. 00:33
Jáh!!!Þessi auglýsing fer alveg hryllilega í mig,algjör viðbjóður!
Brynja Svanhvít Lúðvíksdóttir (IP-tala skráð) 22.11.2008 kl. 17:33
Í útvarpinu org og gól
eyru mikið kvelja.
Þegar eitthvert andlaust fól
ætlar rusl að selja.
Ólafur Þórir Auðunsson (IP-tala skráð) 22.11.2008 kl. 23:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.