Leita í fréttum mbl.is

Símtal frá Alþjóðlegum Spillingar-Mælingum (þýtt)

Ísland:  "Skrifstofa Íslands góðan dag."

A.S.M:  "Góðan daginn. Ég hringi frá Alþjóðlegu Spillingar- Mælingastofnuninni til að mæla hversu mikil spilling er á Íslandi og mig vantar hina árlegu skýrslu frá ykkur."

Ísland:  "Já ekkert mál, bíddu ég er að leita að þessu hérna."

A.S.M:  "Einmitt, heyrðu gætirðu kannski sent skýrsluna til okkar í tölvupósti, sendu á netfangið...."

Ísland:  "Bíddu, ég er með þetta hérna, þetta er nú svo lítið að það tekur því varla að senda autt blað, ekkert sem við höfum skráð núna í nokkur ár. Bara eitt skráð tilfelli hérna fyrir nokkrum árum, þarna þegar þingmaðurinn úr Eyjum stal nokkrum hellum og einhverju smádrasli og lét skrifa í BYKO og var settur á Kvíabryggju, vorum búnir að tilkynna það sko."

A.S.M:  "Nú það var gott að heyra. Jæja ég set ykkur þá neðst á spillingarlistann. Þið standið ykkur vel."

Ísland:  "Já takk fyrir það. Bless bless."

A.S.M:  "Bless."


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Ritstjóri

Guðmundur Bergkvist
Guðmundur Bergkvist
er kamerudýr, bjórhverfinga- maður og fyrrv. óðalsbóndi. Afar áhugasamur um sjónvarp, tónlist, kvikmyndir, eiginkonuna, knattspyrnu, veiðimennsku og internetið.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 51649

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband