25.4.2008 | 11:54
Kýldur í andlitið?
Margir fjölmiðlar sögðu frá því í gær að lögreglumaður hafi verið sleginn í andlitið við gamla strætóportið á Kirkjusandi þegar vörubílstjórar komu til að sækja vörubíla sem lögregla tók við Rauðavatn. Fjölmiðlar tóku orð lögreglu trúanleg og sögðu svo frá: "Lögregla segir að maðurinn hafi ráðist á lögregluþjón og kýlt hann í andlitið" Það er að sjálfsögðu á engan hátt réttlætanlegt sem árásarmaðurinn gerði en það er allt í lagi fyrir lögregluna að segja rétt frá. Ég varð vitni að atvikinu og eftir að hafa skoðað aftur upptökurnar, margsinnis, þá kem ég ekki auga á neinar kýlingar. Árásarmaðurinn, sem er um 100 kg. maður, stökk skyndilega á lögreglumanninn og tekur hann hálstaki, snýr hann niður og þar verður lögreglumaðurinn undir honum þegar þeir skella í malbikið af miklum þunga og hlýtur sár við höggið. Í fljótu bragði virðist sem að kýlingar eigi sér stað en það var ekki svo. Sjá nánar hér.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Laukrétt hjá þér lögga & fjölmiðlar lugu að okkur, löggan var tekin hálstaki og svo skella báðir mennirnir í götuna, þetta skiptir kannski ekki öllu máli og er jafn leiðinleg uppákoma, en rétt skal vera rétt.
Skarfurinn, 25.4.2008 kl. 12:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.