Leita í fréttum mbl.is

Gapastokkinn aftur í notkun

Fangelsis- og betrunarvist er ekki nokkur andskotans betrun lengur nú á dögum. Stigamenn sem vantar húsnæði líta margir á þetta sem fría topp gistingu og ungir pjakkar sem brjóta ítrekað af sér gera það aftur og aftur og finnst sumum bara rosa kúl að hafa farið í steininn, enda dvelja þeir þar stutt í senn. "Steinninn" er líka að breytast í 3 stjörnu hótel, ekki amarleg vist það. Flatskjáir, internet og ýmis nútíma þægindi alveg gratís á sumum gististöðum, jafnvel frí menntun í boði fyrir morðingja og nauðgara. Enda eru "hótelin" alltaf yfirfull.

Hvernig væri nú að fara að taka upp gamla góða gapastokkinn aftur sem refsingatól. Á sínum tíma var tilgangurinn með gapastokknum sá að menn sæju virkilega eftir því að hafa brotið af sér. Þessi snilldar tæki voru gjarnan höfð við kirkjur á messudögum þar sem afbrotamenn voru látnir gapa í stokknum meðan sveitungarnir gengu fram hjá. Afbrotamennirnir upplifðu oftast skömm og niðurlægingu og iðruðust. Ekki væri þetta vitlaust úrræði nú á dögum, enda ekkert líkamstjón sem tækið veldur og mannréttindasamtök gætu varla fundið mikið athugavert við það.

Líklega myndu einhverjir hugsa sig tvisvar um áður en þeir fremdu glæp ef gapastokkur sem þessi biði eftir þeim við Kringluna eða Smáralind þar sem þeir væru látnir dúsa heilu og hálfu dagana og væri svo aftur hent niður í dimma dýflissu yfir nóttina.gabestok


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sá það í grein í Morgunblaðinu um helgina,að útlendingar sem eru í fangelsum hér á landi ,líta á það sem að vera á hinu besta hressingarhæli.Þeir segjast mótmæla því allir sem einn að þurfa að taka út dóma sem þeir fá hér á landi,í heimalandi sínu,því aðstaða þar sé ekki til að líkja þeim þægindum sem eru til staðar hér..Ég segi nú bara,,Hvað er í gangi í þessu samfélagi meira er gert fyrir glæpamannin en fórnarlambs hans.Menntun líkamsrækt læknisskoðanir,tannviðgerðir,og svona mætti lengi telja upp.Sem betur fer þekki ég ekki af eigin raun rimlalífið.En hvað með fórnarlömb,margra þessara misindismanna,hvaða aðstoð fá þaug frá samfélaginu?Örugglega ekki alls ókeypis.Ég bara spyr eru fangelsi á Íslandi,Betrunarhús eða hvað.?Svo mikið eða lítið veit ég.

jensen (IP-tala skráð) 22.4.2008 kl. 10:34

2 Smámynd: Þórhildur Helga Þorleifsdóttir

Sínum augum lítur hver silfrið !!  ( ekki Egils samt).  Ég vil að fangelsi séu ætluð til betrunar,- og hef mikla trú á því að með því að láta ógæfufólki líða vel,- með flatskjá og alles,- og menntun o.s.frv. þá snúm við þeim á gæfubraut.........batnandi fólki er best að lifa og barsmiðar og gapastokkar hafa ekki gert fólk að betri manneskjum. 

Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 23.4.2008 kl. 20:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Ritstjóri

Guðmundur Bergkvist
Guðmundur Bergkvist
er kamerudýr, bjórhverfinga- maður og fyrrv. óðalsbóndi. Afar áhugasamur um sjónvarp, tónlist, kvikmyndir, eiginkonuna, knattspyrnu, veiðimennsku og internetið.
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband