4.4.2008 | 11:50
Mótmælum!
Jeppakallar hafa risið upp á afturlappirnar og mótmæla því að hobbíið þeirra verður sífellt dýrara. Þeir völdu sér sjálfir þetta áhugamál. Önnur lögmál gilda um þá sem vinna við að keyra og eru í atvinnurekstri, hvort sem það eru vörubílar eða ferðamannabílar. Við veiðimenn mótmælum ekki þegar veiðileyfin hækka ár eftir ár. Við völdum okkur þetta áhugamál og vitum að þetta getur verið dýrt spaug í þessu okurlandi. Við öskrum kannski og æpum og liggjum á flautunni næst þegar skotin hækka og stangirnar kosta allt í einu meira. Golfarar brjálast svo þegar árgjöldin verða hækkuð, eða kylfurnar verða dýrari vegna gengisfalls ónýta gjaldmiðilsins. Það hefur ekki verið skortur á hækkunum á svona leikföngum, frekar en öðru á Íslandi. En kannski þetta sé málið í dag. Ég ætla að líma svona miða á bílinn minn og leggjast á flautuna fyrir framan Alþingi, ég þoli ekki sífelldar hækkanir.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sammála ég vil líka að gjöld verði felld niður af spilastokkum það er ekki hægt að leggja kapal lengur.
Skúli Þór (IP-tala skráð) 4.4.2008 kl. 13:44
ÞJÓÐNÝTUM LAXVEIÐIÁRNAR!
Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 4.4.2008 kl. 14:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.