8.2.2008 | 22:39
Samsæri
Nei nú er nóg komið af skepnuskapnum gegn borgarstjóranum. Það er ekki nóg með að Spaugstofan sé að hamast í vesalings Ólafi F. og setja á svið heilu geðveikraþættina, nú eru komnir 2 þættir í röð. Dagskrárstjóri Sjónvarpsins baðst sko ekki afsökunar á aðförinni gegn Ólafi, heldur tók til óspilltra málanna í samsærinu gegn nýja borgarstjóranum og raunar borgarstjórninni allri. Í liðinni viku skellti hann á dagskrá íslensku kvikmyndinni Englar alheimsins sem fjallar um klikkaða gaura í Reykjavík sem eru gúggú og ga ga, bimmilimm og bomm bomm og bjóða sjálfum sér upp á flottustu veitingarnar. Þetta getur ekki verið tilviljun því að í næstu viku verður hann svo með Gaukshreiðrið á dagskrá og Guð má vita hvað kemur næst. Er ekki meijor Ólafur F. búinn að þola nóg, sjálft Sjónvarp allra landsmanna að snúa hnífnum í sárinu.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Búin að hlægja mig máttlausa,- þú breytist ekki,- núna man ég afhverju okkur Sibbu fannst svo gaman að taka þig með á rúntinn í den ;)
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 8.2.2008 kl. 22:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.