Leita í fréttum mbl.is

Jólasveinar

Einhvern tímann á síðustu öld var horuðu kryppukörlunum í rifnu fötunum breytt í feitar og pattaralegar fitubollur með hvítt skegg í rauðum búningum. En það vita ekki allir að það fyrirbæri var eitt fyrsta ameríska markaðshyggju-gimmikið sem laumaði sér inn um bakdyrnar á Íslandi. Það var nefnilega stórfyrirtækið Kóka kóla sem bjó til þennan rauða og feita sveinka og við Íslendingar svissuðum yfir í 13 pattaralega rauða kólasveina í staðinn fyrir bölvaða horgemlingana, það var greinilega orðið þreytt lúkk. Eitt skáldið ruglaðist á breytingaskeiðinu og hélt að jólasveinarnir væru einn og átta og orti um það lag.santa-coke

En nöfnin á þessum furðufuglum fengu þó að halda sér og gefa ýmislegt til kynna. Þeir virðast vera dónalegir pervertar og þjófar þrátt fyrir að vera ögn vinalegri eftir breytingar. Kannski ekki skrýtið að 13 karlmenn verði skrýtnir af því að húka öldum saman í helli - rúma 11 mánuði á ári í senn. Það er til dæmis alger perraskapur að liggja á gluggum á gægjum og sá sem reynir að krækja í annarra manna bjúgu er líka alger perri. Manni getur líka dottið í hug í þessu samhengi eitt og annað ósiðlegt þegar nafngiftir eru dregnar af því að sleikja eitthvað. Svo voru tveir graðnaglar, Staur og Gaur sennilega mjög iðnir við kolann og einn sveinkinn er alltaf að þefa hér og þar, Guð má vita hvar.. Vesalings Stúfur, sá er örugglega búinn að fá að finna fyrir því í gegnum tíðina.

Mynd_0225022Restin af sveinunum virðast vera banhungraðir þurfalingar, sístelandi mat eða matarleifum eða betlandi kerti og spil. Svo er einn víst alveg hrikalega geðvondur gæi sem skapar smiðum heilmikla yfirvinnu við að laga hurðir og karma.

En versta við allt þetta jólasveinarugl er að við fullorðna fólkið kennum börnunum að það megi ekki ljúga og síðan ljúgum við sjálf að vesalings börnunum og hræðum þau með allskonar sögum af þessum skrýtnu köllum og að mamma þeirra sé versta illmenni sem til er. Stundum hótum við jafnvel krakkagreyjunum því að kellingin komi og stingi þeim í poka ef þau hagi sér ekki vel. Það er nú bara hreinasta illska að koma svona fram við börnin.

En nú til dags eru sveinkarnir reyndar orðnir ósköp líkir okkur mannfólkinu, þeir vinna allir fyrir stórfyrirtæki, verslanir og peningaöfl að einu markmiði, græða nógu andskoti mikið fyrir jólin.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Ritstjóri

Guðmundur Bergkvist
Guðmundur Bergkvist
er kamerudýr, bjórhverfinga- maður og fyrrv. óðalsbóndi. Afar áhugasamur um sjónvarp, tónlist, kvikmyndir, eiginkonuna, knattspyrnu, veiðimennsku og internetið.
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband