Færsluflokkur: Vefurinn
12.1.2009 | 15:12
Gandalfur kemur vitinu fyrir Davíð
Vefurinn | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.3.2008 | 19:36
Ég vissi þetta!!!!!!!
Þessir farsímar eru stórhættuleg tæki sem eiga eftir að tortíma okkur. Ég er ekki í nokkrum vafa um að Djöfullinn sjálfur hefur skapað þessi skaðræðistól. Fyrir nokkrum árum gerði ég ásamt vini mínum kvikmynd um þessa miklu vá og var myndin sýnd á RÚV, en hún fékk m.a. 3 stjörnur í kvikmyndagagnrýni Moggans.
Þetta er þá semsagt orðið staðfest....
Farsímar hættulegri en reykingar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 19:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
10.12.2007 | 23:09
Slefað og Sleikt
Þá er komið að nýjum lið hér á síðunni sem kallast Slefað og Sleikt. Þetta eru sjóðheitar skúbb-fréttir frá leynilegu slúðurblaði sem kallar sig "Slefað og Sleikt".
-Samkvæmt fréttum s.l. viku keypti nýkvænti öðlingurinn Jon Aus Gehr hin mögru hlutabréf sem Nesi Smára átti eftir í FL Gubb og hefur hann nú potað fasteignahluta Baugs inn um afturendann á félaginu til að eignast Icelandair með húð og hári. Nú á hann næstum allt Ísland.
En Jon Aus Gehr lætur ekki staðar numið þar. Samkvæmt heimildum Slefað og Sleikt vill Jóhannes faðir hans líka bjóða landsmönnum upp á mismunandi flugferðir á sama hátt og þeir feðgar bjóða upp á mismunandi verslanir og ku feðgarnir vera að stofna lággjaldaflugfélag sem kallast Bonus-Air, en það er ætlað fyrir sama þjóðfélagshópinn og verslar í Bónus búðunum. Þeir eru víst búnir að kaupa nokkrar hráar fraktvélar sem fluttu áður dýrafóður í þróunarlöndunum, engin sæti að taka óþarfa pláss í vélunum og fólk getur bara legið þar sem því sýnist, ógeðslega hagkvæmt. Og þá geta öryrkjar og ríkisstarfsmenn loksins komist til útlanda líka. Viðskiptamódelið mun líta sirka svona út:
Hagkaup, Icelandair Skemmtilegast og dýrast. Hentugt fyrir þá sem eiga skítnógan péníng.
Bónus, Bonus-Air Hrátt og skítbillegt. Fínt fyrir fátæklingana.
En Jon Aus Gehr og faðir hans vilja víst líka kaupa flugstöðina á Keflavíkurflugvelli og breyta henni í verslanamiðstöð. Leifskringla, hljómar bara vel. Enn eitt mollið í eigu Baugs, fullt af verslunum og fyrirtækjum -í eigu BAUGS. Ekki lækkar okurverðið í Fríhöfninni við það...
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 23:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar