Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Samfylkingarsígarettur?

Það var engu líkara en að Ingibjörg Sólrún flytti ræðu sína úr sígarettupakka á flokksþinginu í gær. Vinna og Velferð, nýju slim sígaretturnar frá Samfylkingunni! Viðskiptahugmynd? Ný lausn á atvinnuleysinu? Það er spurning...Ingjbjorg sigaretta

Viðtal við forseta

Ritstjórinn Kynlegur Kvistur var fyrstur á Nýja Íslandi til að ná viðtali við nýkjörinn forseta Bandaríkjanna. Forsetinn sagðist kvíða því gríðarlega erfiða verki að hreinsa upp allan óþverrann eftir forvera sinn og endurheimta virðingu þjóðanna. Hann sagðist einnig þakklátur Íslendingum fyrir að kjósa sig með 85% greiddra atkvæða í prufukosningum á kosningavöku í nótt sem haldin var í ríkinu New Iceland, sem hann sagði vera einskonar tilraunafylki eða bara lítil Ameríka.Með Obama á kosninganótt

Frétt frá 1936

Sagan endurtekur sig, það er greinilegt.Fregnmiði


Óvinir Íslands

Það eru margar hætturnar sem steðja að íbúum þessa lands. Varnarmálaráðherrann hefur gert miklar ráðstafanir og sett fé í ýmis verkefni og svo eru aftur komnar hingað erlendar orrustuþotur til að tryggja varnir landsins og haldnar eru stórar heræfingar reglulega á landinu með miklum tilkostnaði.

En ráðherrann gleymdi einu. Hann er alltaf að reyna að herma eftir ákveðnum stórþjóðum sem eru búnar að koma sér upp óvinum út um allt. Hætturnar sem hann telur ógna landslýð eru ekki mannlegir óvinir okkar. Óvinur Íslands númer eitt er að sjálfsögðu náttúran og þar á að eyða kröftum og peningum ríkisins til að tryggja öryggi íslendinga sem eru búnir að koma sér vel fyrir beint ofan á eldfjallahrygg.

Allt frá því mannfólk fór að þvælast hingað norður á þetta stórhættulega sker hefur náttúran leikið það grátt. Eldgos hafa úðað úr sér svo miklum eiturgufum og hrauni að fólk hefur dáið eða flúið land í hópum. Hafís hefur oft lokað stórum hluta landsins, (hvernig ætlum við að bregðast við því þegar það gerist næst?) Veðrið á norðurhjara er jú ekkert grín, það þarf ekkert að fjölyrða um það frekar. Jarðskjálftar hafa einnig leikið frónbúa grátt eins og nýjustu dæmin sanna, og svo geta auðvitað mannýg óargadýr komið syndandi til lands að norðan.

Það eru greinilega ekki til almennilegar viðbragðsáætlanir við öllum þessum hættum, einhverjar eru þó til og víst hefur bót verið gerð í þeim efnum á undanförnum árum. En í þessum áætlunum reiða stjórnvöld sig að stóru leiti á framtak borgaranna sjálfra, sem eru björgunarsveitirnar. En eitt er víst að ekki duga neinar erlendar orrustuþotur eða sérsveitir og hersveitir til varnar verstu óvinunum. Þó gæti BB verið búinn að láta eyða mikilli vinnu í viðbragðsáætlun við innrás talibana eða hryðjuverkum Al Quaeda, maður skal ekki segja.

Ég er hvorki herstöðvarandstæðingur né kommúnisti, aðeins rétthugsandi einstaklingur sem vill ekki standa bölvandi eldrauður í framan af reiði á þeirri stundu sem stjórnvöld brugðust vegna þess að þau voru búin að vera svo upptekin af einhverju kjaftæði og gleymdu mikilvægum þáttum í öryggi landsins. Mörgum íbúum New Orleans leið einmitt þannig þegar þarlend stjórnvöld skitu upp á bak þegar náttúran lék borgina og nágrenni grátt fyrir nokkrum árum.

Sjálfstæð velmegunarþjóð á norðurhjara sem neyðist til að reka björgunar- og hjálparsveitir með óbreyttum borgurum í sjálfboðavinnu verður að hafa rétta forgangsröðun á hlutunum.


Hálfviti hættir

Nú styttist í það að heimsbyggðin losni við mesta hálfvita sem komist hefur í hæstu valdastöðu í heiminum. Við gleðjumst að sjálfsögðu og af því tilfefni er gaman að rifja upp "highlights" eins og þeir segja í Ameríkunni. Hér er snillingurinn á bak við ræðurnar hans Bússa.

Ráð-herra

Þetta orð hefur vafist fyrir mörgum að undanförnu og ekki virðist vera neitt annað betra orð í sjónmáli, eða hvað? Orðið Minister gengur ekki alveg á Íslandi þótt aðrar Norðurlandaþjóðir hiki ekki við að lepja slík orð beint upp úr enskunni. Nýlega hitti ég mann sem sagði að Ingibjörg Sólrún væri Ráð-herfa. En Geir Haarde er þá líklega bara Ráð-þrota. Ætli Bjössi Bjarna vilji ekki helst af öllu vera kallaður Stríðs-herra og Árni Matt gæti þá kallast Ráð-ningaherra. Björgvin G. er auðvitað ekkert annað en Ráð-Evra.


Starfsmaður mánaðarins

Á mörgum vinnustöðum er alltaf kosinn starfsmaður mánaðarins. Ég átti í vikunni leið um Ráðhús Reykjavíkur en þar hafa menn orðið að grípa til þessarar ráðstöfunar...Borgarstjóri mánaðarins

Lýðræðisnauðgun

Hlutirnir gerast svo hratt þessa dagana að það var vissara að tékka á blöðum og vefsíðum í morgun til að sjá hvort það væri kominn enn einn nýr borgarstjórinn í dag. En í einu blaðinu í morgun var þó auglýsing frá Flugfélagi Íslands "SKELLTU ÞÉR TIL EGILSSTAÐA Í DAG, LAUS SÆTI Í VÉLINNI" Þetta er nú bara trikk frá óþekktum klækjaref síðan í síðustu viku til losna við pakkið sem stjórnar borginni því einhverjir borgarfulltrúar ásamt Degi borgarstjóra bitu á agnið og fóru austur. Ekki vildi betur til en svo að Svandís settist í sætið sem Dagur átti að sitja í og kastaðist hún úr sætinu á flugi og slasaðist, það var nefnilega ætlunin að kasta Degi úr sætinu sínu. En það tókst nú samt á endanum því ekki aðeins klækir Kjartans Magnússonar komu til, heldur virðist sem æðri máttarvöld hafi einnig hjálpað gamla góða Villa að raða hnífasettum í bakið á þeim sem sviku hann. Þegar japanskar My-Jókó ekkjur koma til Íslands fer nefnilega allt upp í loft í borgarstjórn og nú er Villi kominn þangað inn AFTUR. Er samt ekki eitthvað undarlegt við það að sami maður og skeit á sig í borgarstjórastólnum fyrir 3 mánuðum hafi leyfi til að ráða sjálfan sig í embættið aftur með klækjum og lúabrögðum?

Winston Churchill sagði eitt sinn að lýðræði væri versta stjórnarformið, fyrir utan öll hin sem hafa verið reynd í gegnum tíðina. Líklega var það rétt hjá kallinum.


Er heilbrigðisþjónusta bissness?

Heilbrigðisráðherra er nú alveg genginn af göflunum, hann heldur að sjúklingar séu viðskiptavinir og heilbrigðiskerfið sé einn stór bissness þar sem sjúklingar gangi kaupum og sölum. Sjúkrahúsin á Íslandi eiga að fara að keppa við önnur sjúkrahús á Norðurlöndum um sjúklinga. Já takk, hann vill fara í útrás og keppa og keppa, á hvaða plánetu er þessi maður? Það yrði hlegið að Íslandi ef það myndi reyna að keppa við hin Norðurlöndin í heilbrigðisþjónustu. Markaðshyggja íhaldsins er komin út í slíkar öfgar að það er hreint skelfilegt. Einkavæðingin mun koma um leið og hátæknisjúkrahúsið rís, það blasir við.

Væri ekki gáfulegra fyrir ráðherrann að reyna að sinna því brýna verkefni sínu að koma einhverju skikki á helbrigðiskerfið áður en hann vill fara að "keppa" um sjúklinga erlendis frá. Hvar ætlar hann eiginlega að koma innfluttu sjúklingunum fyrir, úti á bílastæði við spítalana? Gangarnir eru alltaf fullir þannig að ekki er pláss þar, og svo er ekki heldur starfsfólk til að sinna þeim sem fyrir eru. Jú auðvitað, stöðumælaverðirnir sem eru farnir að sekta fólk á stæðunum við spítalana geta bara séð um að rukka fyrir erlendu sjúklingana og jafnvel leikið sjúkraliða í leiðinni því eftir nokkur ár verða engir hjúkrunarfræðingar eftir lengur á sjúkrahúsunum.


Næsta síða »

Ritstjóri

Guðmundur Bergkvist
Guðmundur Bergkvist
er kamerudýr, bjórhverfinga- maður og fyrrv. óðalsbóndi. Afar áhugasamur um sjónvarp, tónlist, kvikmyndir, eiginkonuna, knattspyrnu, veiðimennsku og internetið.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 51294

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband